Múspell - Skálmöld

Múspell - Skálmöld

Альбом
Vögguvísur Yggdrasils
Год
2016
Язык
`islandês`
Длительность
320660

Abaixo está a letra da música Múspell , artista - Skálmöld com tradução

Letra da música " Múspell "

Texto original com tradução

Múspell

Skálmöld

Kvika streymir og kraftar losna

Klettar brenna, (klettar brenna)

Barnið dreymir en taugar trosna

Tárin renna (tárin renna)

Bráðna steinar og bergið flýtur

Brostnir draumar, (brostnir draumar)

Ljósið veinar og loginn hvítur

Landið kraumar, (landið kraumar)

Bálið sem veldur bardögum

Bjarma á kveldið kastar

Surtur fer heldur hamförum

Hér sefur eldur fastar

Jötnar æða um jörð í molum

Jöklar gráta

Ísinn bræða á æstum kolum

Æpir hnáta

Móðir huggar þar mædda dóttur

Múspell fagnar (Múspell fagnar)

Dansa skuggar er dofnar þróttur

Dagur þagnar (Dagur þagnar)

Þú deyrð í nótt!

(Himinninn er hulinn sóti

Hraunið rennur okkur móti

Svartnætti til allra átta

Illt er myrkur Múspellsnátta)

(Finnum hvernig fætur svíða

Feigir eftir okkur bíða

Saman munum lífið láta

Lítil rödd er hætt að gráta

Ryðst úr sprungum, gjám og gjótum

Gríðarbál í risafljótum

Loki gefur lausan tauminn

Leikur sér við stríðan strauminn)

Liggjum við á litlu skeri

Lyftist glóðin nær

Sárt að hérna beinin beri

Barnung dóttir kær

Loks ég finn að lítill skrokkur

Lætur eftir sitt, (lætur eftir sitt)

Hraunið breiðir yfir okkur

Elsku barnið mitt, (elsku barnið mitt)

Mais de 2 milhões de letras

Músicas em diferentes idiomas

Traduções

Traduções de alta qualidade para todos os idiomas

Busca rápida

Encontre os textos que você precisa em segundos