Niflheimur - Skálmöld

Niflheimur - Skálmöld

Альбом
Vögguvísur Yggdrasils
Год
2016
Язык
`islandês`
Длительность
303610

Abaixo está a letra da música Niflheimur , artista - Skálmöld com tradução

Letra da música " Niflheimur "

Texto original com tradução

Niflheimur

Skálmöld

Sem vetur konungur í klakahelli

Út liðast Níðhöggur á Nábítsvelli

Hrímþursar fylgja með á svörtu svelli

Blikandi norðurljós á Niflheimsþaki

Þrúgandi þögnin heldur traustataki

Já, hér er ekkert nema kyrrð og klaki

Þennan stað hýsir þjáningin

Þursarnir vísast kaldir

Heimurinn frýs við himininn

Hér sefur ís um aldir

Þursarnir væla meðan vindar gnauða

Og rokið skilur eftir skika auða

Ísinn er sprunginn og hann spúir dauða

Sofðu.

Sofðu

Í lofti þokkafullar þokuslæður

Hér er það ísinn sem að ríkjum ræður

Hér deyja mennirnir og Múspellsbræður

Sofðu.

Sofðu

Nýr dagur rís

Hér sefur ís

Niflheimahliðin, þar fordæmdur fer

Dagur er risinn en dimmt hvar sem er

Dóttir mín litla, hvað gerði ég þér?

Þá gýs úr Hvergelmi með ógn og ótta

Og þar með leggja allir lífs á flótta

Það birtir ekki Nifls- á milli nótta

Sofðu.

Sofðu

Þar svífur vætturin á vængjum þöndum

Við erum fönguð þar sem fátæk stöndum

Og bundin kyrfilega klakaböndum

Sofðu.

Sofðu

Nýr dagur rís

Hér sefur ís

Léttir það varð þegar dóttir mín dó

Sofðu sem fastast og finndu þér ró

Faðmur minn verndar frá kulda og snjó

Mais de 2 milhões de letras

Músicas em diferentes idiomas

Traduções

Traduções de alta qualidade para todos os idiomas

Busca rápida

Encontre os textos que você precisa em segundos