Loki - Skálmöld

Loki - Skálmöld

  • Ano de lançamento: 2013
  • Linguagem: islandês
  • Duração: 9:37

Abaixo está a letra da música Loki , artista - Skálmöld com tradução

Letra da música " Loki "

Texto original com tradução

Loki

Skálmöld

Nóttin kemur og nístir inn í bein

Nú í fjarska ég heyri hana gráta

Elsku systir, sem alltaf varst svo hrein

Ekkert vildi ég fyrir koma láta

Löngum stundum þar léku saman börn

Lítil systkin sem Óðinn hafði skapað

Brást ég illa og Brynhildi hef tapað

Loki!

Þetta er hans vilji

Loki!

Veit þó ekki skilji

Loki!

Tæra vildi taka

Loki!

Trú, og hana þjaka

Engan höfðum og alltaf vorum snauð

Ekkert virtist þó systkinunum granda

Vissi ekki að vísan átti auð

Vesæll húki og hlusta á mig anda

Börn hans Loka, ég barðist við þau öll

Batt og særði og kynntist sumum náið

Hetjan þessi sem fer um víðan völl

Er vesæll maður sem getur ekki dáið

Loki!

Systur mína seldi

Loki!

Sit ég undir feldi

Loki!

Harma mun ég hefna

Loki!

Hatursloforð efna

Tilveruna tryllingur skekur

Tregafleyg í hjarta þitt rekur

Haldið þrengist

Hildur engist

Hráki snáksins andlitið þekur

Endalaust munt þrautina þreyja

Þú skalt kveljast mest allra meyja

Alla daga

Illt mun naga

Auma sál sem fær ekki að deyja

Næra sinnið, heiðna hata

Heimskir Óðin lofa

Tæra sálu árar ata

Aldrei skaltu sofa

Ég er Loki, ég er Loki

Þú ert undir mínu oki

Hilmar Baldursson

Græsku beitum, sjaldan sefast

Sorgir þegar vinnum

Gæsku sína alltaf efast

Ekki duginn finnum

Ég er Loki, ég er Loki

Þú ert undir mínu oki

Hilmar Baldursson

Sæta engra veldur vopni

Vondu udnir oki

Vætta Miðgarðs augu opni

Óðinn heitir Loki

Ég er Loki, ég er Loki

Þú ert undir mínu oki

Hilmar Baldursson

Mais de 2 milhões de letras

Músicas em diferentes idiomas

Traduções

Traduções de alta qualidade para todos os idiomas

Busca rápida

Encontre os textos que você precisa em segundos